17 des

Jæjja. Þá er kominn tími á blogg...

Dagurinn byrjaði á því að Röggi vakti mig klukkan eitthvað og fór ég með honum og Frilla í eitt búðarráp og nokkra rúnta. Hlustuðum við ekki á óskemtilegri hljómsveit en Redd Hott Sjillípeppers.. Ekki óskemtilegri hugsanlega vegna þess að óskemtilegri hljómsveit er ekki að finna á yfirborði jarðar. Nei þetta er kannski ekki rétt.. En mikið fíla ég þá ekki. 

En ég fjárfesti í jólagjöf handa mömmu og pabba (ég ætla ekki að segja ykkur hvað það er vegna þess að maður veit aldrei hver asnast inná bloggsíðuna hjá manni). Svo pantaði mamma handa mér jólagjöf áðan.. gítarport frá line 6 sem er svona hægt að tengja í tölvu og maður spilar svona gítar í... æ... ef þið vitið ekki hvað það er þá nenni ég ekki að reyna að setja það í orð...

Mig er líka farið að verkja... mig langar svo að fara að spila í metalbandi. Þetta er ekki gott ástand!.. en jæjja.. ég er farinn að halda áfram að horfa á lamb of god tónleika...

bless


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband